Stjörnumerkin okkar
Ég og fósturdóttir mín Sandra Björg erum báðar vatnsberar:
Vatnsberinn:
Vatnsberar eru oft háir og glæsilegir, með loðnar augabrýr og óstýrlátt hár og þeir klæðast gjarnan dýrum og nýtískulegum fötum en yfirleitt skapa þeir þó sér sinn eigin fatastíl. Vatnsberar eru sjálfstæðir í hugsun og fylgja ekki viðteknum skoðunum og þeir vilja einlæglega berjast gegn alls kyns óréttlæti, ekki síst félagslegu. Vatnsberinn er vingjarnlegur og opinn í framkomu og nýtur sín vel í félagslegu samhengi, bæði í stærri og minni hópum. Þeir eru ævintýragjarnir og stundum sérvitrir, eiga til bæði önuglyndi og þrjósku ekki síst ef þeir neyðast til að verja eigin sérlyndi. Þeir eru hinsvegar óþreytandi og berjast fyrir minnimáttar. Vatnsberinn er frumlegur í hugsun og velur sér gjarnan óvenjulegt starfssvið eins og t.d stjörnufræði, fornleifafræði eða annað vísindatengt en þeir gætu allt eins tekið upp á því að gerast flugmenn eða að skrifa vísindaskáldsögur! Þrátt fyrir mannúðlegt hjartalag er Vatnsberinn oft fjarlægur og erfitt að ná sambandi við hann svo hann ætti að reyna að vera hlýlegri í framkomu og reyna að gefa meira af sjálfum sér.
Einkenni:
Lykilorð: Félagslegar hugsjónir.
Pláneta: Úranus.
Höfuðskepna: Loft.
Litur: Himinblár.
Málmur: Úraníum.
Steinar: Aquamarín, túrmalín.
Líkamshluti: Fótleggir, ökklar, blóðrás.
Frægir Vatnsberar: Elín Pálmadóttir, John Travolta, Michael Jordan, Karólína prinsessa, Galileo, Ronald Reagan, Gertrude Steiner, Vanessa Redgrave, Virginia Woolf og Lord Byron.
Helstu einkenni Vatnsbera:
Þjóðfélagsmerki, hugsjónarmaður. Opinn, vingjarnlegur, sjálfstæður, félagslyndur, stoltur, hefur mikla réttlætiskennd, sérvitur, hlutlaus, hræðist tilfiningar og sambönd við aðra. Uppfinningasamur, listfengur, elskar frægð, kraftmikill, kaldur, rólegur og yfirvegaður. Afskiptalaus, frekur, stjórnsamur. Viðræðugóður, dularfullur, á til þrjósku og stífni, skýr og yfirveguð hugsun, getur verið erfiður í samstarfi, á oft erfit með persónulega tjáningu og virkar oft kuldalegur og merkilegur með sig.
Andri Freyr 02.04.96
Hrúturinn:
Hrúturinn er oft grannur og spengilegur með augabrúnir og nef sem minna á táknið fyrir stjörnumerkið. Hann er lítið hrifnn af skrautgripum og fötum sem hefta hreyfingafrlesi hans, enda er hann hvatvís og lifandi og fljótur að bregðast við. Hrúturinn er eldmerki svo fólk sem fætt er í Hrútnum hefur oftast ríka þörf fyrir að tjá sig í verki. Það er dugandi og blátt áfram og á bágt með að þola tafir og aðgerðaleysi. Hrútar eru óþolinmóðir og þrjóskir en þeir eru líka gæddir persónu-töfrum og stefna einbeittir að settu marki. Þeir eru fæddir leiðtogar og fljótir að hugsa en eðlislæg hreinskilni veldur því að þeir eiga bágt með að segja ósatt og hrútar eru oft saklausir og einlægir í hjarta. Hrútar hafa gaman af íþróttum, helst ef í þeim felst hraði, hreyfing og líkamleg snerting enda finst þeim fátt verra en að sitja aðgerðalausir. Hrúturinn er í eðli sínu brautryðjandi, svo hann hneigist til að finna sér starf sem krefst frumlegrar hugsunar og margir Hrútar gerast vísindamenn, skurðlæknar, uppfinningamenn, geðlæknar eða sálfræðingar en Hrúturinn gæti allt eins tekið upp á því að reka eigið fyrirtæki, iðulega innan nýrrar starfsgreinar. Hrútar heillast líka af stjórnmálum og eru oft virkir félagar eða í stjórn síns stéttarfélags. Ef Hrúturinn ætlar að ná langt þarf hann að læra að stjórna skapi sínu og ætti að huga meira að þörfum og skoðunum annara til að komast hjá árekstrum.
Einkenni:
Lykilorð: Athafnaorka.
Pláneta: Mars
Höfuðskepna: Eldur
Litur: Rauður
Málmur: Járn
Steinar: Rúbín, blóðsteinn, jaspis
Líkamshluti: Höfuð
Frægir Hrútar: Vigdís Finnbogadóttir, Marlon Brando, Billi Holiday, Diana Ross, Leonardo Da Vinci, Descartes, Þórhildur Þorleifsdóttir, Spencer Tracy og Betty Davis.
Helstu einkenni Hrúta:
Vormerki, líkamlegt merki (breiðar axlir og skarpir andiltsdrættir). Snöggir með hraðar hreyfingar og ákveðnar, opinskáir, lifandi, óþolinmóðir, alltaf að flýta sér, sjálfstæðir, ákafir, kappsfullir, fljótir að framkvæma og fljótfærir, einlægir, áhyggjulausir, tilfinningaríkir, hressir, baráttuglaðir, uppstökkir, hafa mikið sjálfstraust, hreinir og beinir og hæfa best stjórnunarstöðu.
Anton Ingi 06.05.94
Nautið:
Nautið má þekkja á gildum hálsi, lágu enni og hrokknu hári og þau eru oftast íhaldssöm í klæðaburði, en geta þó ekki stillt sig um áberandi fylgihluti t.d. skartgripi, bindi, sokka o.s.frv. Naut eru lífsnautnamenn og kunna vel að meta sætindi og góðan mat, eins og reyndar öll veraldleg gæði og líkamleg atlot, en þau eru líka stöðuglynd og þrjósk og hvika ekki út af þeirri leið sem þau velja sér. Þau eru lengi að taka ákvörðun, en þegar þau hafa gert það getur ekkert stöðvað þau. Naut eru oft einkar séð í fjármálum og peningar skipta þau oft miklu máli, ekki síst vegna öryggisins sem þeir veita. Þau eru gríðarlega skapbráð, langrækin og afbrýðisöm og það getur verið nærri því ógerlegt að fá Nautið til að skipta um skoðun. Naut hafa næmt auga fyrir fegurð og listum, og oft hneigjast þau til starfa sem tengjast slíku, gjarnar innan bókmennta eða myndlistar, en ekki síður starfa innan fjármálaheimsins. Naut verða að gæta þess vel að staðna ekki í efnishyggju og gömlum gildum. Þau ættu að reyna að stokka tilveruna upp með reglulegu millibili og reyna eitthvað nýtt sem gæti víkkað sjóndeildarhringinn.
Einkenni:
Lykilorð: Stöðugleiki
Pláneta: Venus.
Höfuðskepna: Jörð
Litur: Blár
Málmur: Kopar
Steinar: safír, jaði
Líkamshluti: Háls
Fræg Naut: Elizabeth II, Cher, Daniel Day Lewis, Jóhannes Páll páfi, Ólafur Ragnar Grímsson, Halldór Laxness, Florence Nightingale, Eva Peron, Ingólfur Margeirsson.
Helstu einkenni Nauta:
Mýkt og vingjarnleiki. Gæflynd og friðelskandi, róleg, bera virðingu fyrir peningum og öryggi, nautnaseggir í mat og þægindi, slæmt minni, þolinmóð, vinnuglöð, traust, þrjósk, mikið úthald, þröngsýni, bjartsýni, ást á náttúrunni, frek, ósveigjanleg, ráðrík, hlédræg, jarðbundin,afbrýðisöm og listelskandi.
Aldís Elva 31.10.00
Sporðdrekinn:
Sporðdrekar eru oftast grannir, með hvöss og djúp augu og þungar augabrýr. Það er oft sagt að Sporðdrekinn sé misskildasta merki dýrahringsins, og flestum þykir fólk fætt í því merki leyndardómsfullt og spennandi. Undir heilsteyptu ytra borði Sporðdrekans leynist oft gríðarleg tilfinningarólga, afbrýðisemi og ástríða og fólk í þessu merki reynir af fremsta megni að skapa sér tilfinningarlegt öryggi í heimi sem því finnst fjandsamlegur. Sporðdrekar hafa mjög næma eðlisávísun og fæstir geta farið á bak við þá og þeir hafa oftast mikinn áhuga á yfirskilvitlegum efnum. Þeir eru hefnigjarnir en einbeittir og þolgóðir og gefast ekki upp fyrr en í fulla hnefana. Sporðdrekar væru framúrskarandi byltingarmenn einkum af öfgakenndara taginu en þeir kasta sér reyndar af ástríðu út í hverja þá vinnu sem vekur áhuga þeirra og kitlar ímyndunaraflið. Í íþróttum velja þeir sér iðulega eitthvað sem hætta fylgir (eða gæti fylgt) t.d. skylmingar, karate og teygjuhopp en þeir hafa líka yndi af dansi og tónlist. Til að öðlast lífshamingju þarf sporðdrekinn að reyna að sigrast á innri ótta sínum og sálarkvölum sem þeir eiga erfiðara með að leiða hjá sér en aðrir.
Einkenni:
Lykilorð: Tilfinningadýpt
Pláneta: Plútó
Höfuðskepna: Vatn
Litur: Dökkrauður
Málmur: Járn
Steinar: Granat, ópall og túramín
Frægir Sporðdrekar: Þorsteinn Pálsson, Charles Brosnan, John Cleese, Kevin Kline, Valdís Gunnarsdóttir, Flosi Ólafsson, Danny Devito, Goldie Hawn og Demi Moore.
Helstu einkenni Sporðdreka:
Tilfinningaríkir, eigingjarnir, afbrýðisamir, ráðríkir, auðsæranlegir, móðgunargjarnir, úrræðagóðir, næmir, viðkvæmir, dulir, stjórnsamir, kaldhæðnir, alvörugefnir, eiga til að bæla tilfinningar, ástríðumiklir, fastir fyrir, skapstórir, eiga gott með að einbeita sér, varkár, traustur og góður vinur, sterkt ýmindunarafl, heillast af dulúð, eiga til að vera svartsýnir, úthaldsmikilir í vinnu.

Flettingar í dag: 2
Gestir í dag: 2
Flettingar í gær: 1
Gestir í gær: 1
Samtals flettingar: 28331
Samtals gestir: 13729
Tölur uppfærðar: 16.5.2012 22:54:25