Færslur: 2007 Júní

14.06.2007 00:08

Níján!

Já nítján kíló 19, 10+9 úff hef aldrei léstu um svona mikið áður og svo stutt í að það verði 20 víí get ekki beði . Ég vona að ég nái þeim áfanga í næstu viktun næsta þriðjudag. Þetta gengur enn svo ljómandi vel mér finst ég bara ekkert vera að snuða mig um neitt. Fæ mér enn svarta frostpinnann minn af og til hehe ótrúlegur andsk... að verða hooked á því af öllu. Íbúðarkaupin eru á rólegu róli, við erum núna að bíða eftir teykningum af íbúðini eins og hún á að verða svo að umhverfisnefnd geti gefið blessun sína yfir þessar framkvæmdir. Ég er samt ekki alveg að gúddera að það sé bara eitthvað fólk út í bæ sem ræður hvort að neðri hæðin á húsinu okkar sé íbúð eða verslunarhúsnæði. Þetta er ekki það stórt pláss og lítur illa út eins og það er í dag en ef við fáum þetta þá fegrast það til muna. Og annað af hverju ræð ég ekki hvernig glugga ég set í mitt hús sem ég á og bý í. Mér er þetta bara óskiljanlegt hvernig það er hægt að banna manni að hafa eignir eins og maður vill hafa þær. Það er nú ekki eins og maður ætli að mála stórar bleikar hunangsflugur á húsið. Ég heyrði af því að nágrönum okkar var bannað að setja franska glugga í sitt hús, það er reyndar gamalt hús (eins og okkar) og er enn í dag í sinni upprunanlegu mynd en það má alveg lappa upp á það og franskir gluggar mundu bara taka sig fallega út á því húsi. Gluggarnir sem við erum að sækja um leyfir fyrir eru venjulegir neðantil en með frönsku ívafi að ofan þar sem maður opnar gluggana og ég er orðin bara ansi smeyk um að það fái ekki samþykt, ég er að hugsa um að láta fylgja með myndir af annari týpu sem er bara venjuleg með svo ég þurfi svo ekki að bíða aftur í 3 vikur ef þeir skyldu hafna gluggunum sem ég VIL. Ég er samt ekki að gúddera þetta að ráða þessu ekki sjálf. Ég er að fara skotferð til rvk í næstu viku, börnin mín að fara í sumarfrí til pabba síns í 6 vikur :( úff langur tími, ég ætla að nota tækifærið og kaupa mér buxur, ég á ekki einar einustu buxur hér heima sem tolla upp um mig lengur, muniði eftir klofsíðu buxunum in the eitís, öðru nafni kallaðar kúkabuxur aha þú manst ;) mínar buxur líta allar þannig út á mér í dag og það er EKKI falleg sjón. Annars er lítið að frétta héðan nema bara allt gott. Hef það ekki lengra í dag. Síja leiter kveðja Harpa

05.06.2007 11:03

jæja long time no blogg.

Jæja alle sammen, dáldið langt síðan ég hef bloggað en ákvað að skella inn hér línu svona í stund milli stríða. Fermingin gekk svakalega vel hjá okkur og ég er bara hæst ánægð með hvað þetta var reyndar minna stress en ég átti von á. Léttingurinn gengur vel hjá mér í síðustu viktun fyrir viku síðan voru farin 800gr í viðbót. Í totalið er ég búin að missa núna 18 kg síðan miðjan feb og ég er bara í skýjonum með það. Ég er alveg að leyfa mér hitt og þetta en bara í hæfilegum skömmtum og þetta er bara ekkert ekkert ekkert mál eins og ég hef sagt svo oft áður. Minn stæðsti löstur í dag er svartur frostpinni ó já bara ekkert betra en það til fyrr mér en ég passa mig bara að eiga stig fyrir honum þegar ég ákveð að leyfa mér einn þannig :) . Nú er sumarfríið byrjað hjá börnonum og þá er sko nóg að gera. Var á ballettsýningu hjá dóttur minni í gær (stoltastamammaíheimi) og hún var svo flott og þetta var svo gaman að ég bara næstum táraðist við að horfa á hana hún var svo falleg og flott :D. Anton er á skútunámskeiði núna og er þar alveg frá morgni til 4 á daginn og er alveg búinn á því. Siggi og Andri ætluðu að skrá sig líka en allt orðið fullt, svo þeir þurfa eitthvað að hanga heima þar til næsta námskeið byrjar en það fer svo lítið fyrir þeim að maður tekur varla eftir því að þeir séu hérna. Baldur byrjaði í unglingavinnuni og er mættur þar galvaskur kl 8 á morgnana og er nú farinn að skilja aðeins af hverju fólk er svona þreytt eftir að vinna hehe kominn tími til :D. Aldís verður bara að dúlla sér með mömmu í sumar eða þangað til hún , Anton og Andri fara til pabba síns í júlí og þá fara þau til spánar. Ég er hinsvegar að reyna að kaupa hér neðri hæðina í húsinu sem við búum í en það eru 160 fm með kjallara. Við stefnum þá á að færa stofuna og eldhúsið niður og hafa bara svefnálmu hér uppi sem mundi þá laga ástandið á heimilinu á þann hátt að allir fengju sitt eigið herbergi og dótið frá börnonum væri ekki alltaf inni í stofu og eldhúsi (má vera bjartsýn) en ég fæ svar með þetta allt í vikuni hvort kaupin ganga upp. Svo allir krosslegja fingur fyrir mig og vona það besta :D Jæja hef þetta nóg í bili. Kveðja Harpa
  • 1
Flettingar í dag: 2
Gestir í dag: 2
Flettingar í gær: 1
Gestir í gær: 1
Samtals flettingar: 28331
Samtals gestir: 13729
Tölur uppfærðar: 16.5.2012 22:54:25